Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. janúar 2019 var lögð fram fyrirspurn Gunnars Auðólfssonar dags. 3. janúar 2019 ásamt bréfi GRÍMA-arkitekta ehf. dags. 3. janúar 2019 varðandi stækkun hússins á lóð nr. 19 við Urriðakvísl til að koma fyrir stigahúsi, innrétta kjallararými og grafa frá norðurhlið hússins og hluta austurhliðar og setja verandir, samkvæmt uppdr. GRÍMA-arkitekta ehf. dags. 3. janúar 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. janúar 2019.