Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 2. maí 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. apríl 2014 þar sem sótt er um leyfi til að skipta annarri hæð úr einum eignarhluta í tvo og byggja svalir á eignarhluta 0302 á þriðju hæð í húsinu á lóð nr. 7 við Óðinsgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. maí 2014.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda. Gjald kr. 9.500