Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. júní 2022 þar sem sótt er um leyfi til að stækka rými 0101 út á hluta svala með gluggum, eldhús fært og sameinað stofu, komið fyrir herbergi, staðsetning sorps fært framar í lóð, komið fyrir heitum potti og útisturtu sunnan við hús, í rými 0002 er gluggi herbergis á austurhlið síkkaður og komið fyrir björgunaropi, gluggi síkkaður í þvottahúsi, lóð lækkuð að hluta á austurhlið og komið fyrir nýjum inngangi, verkstæðisrými breytt í sjónvarpsherbergi, rými 0001 stækkar undir hluta svala með gluggum, eldhús fært og sameinað stofu, komið fyrir herbergi, björgunarop sett í bæði herbergin, komið fyrir þvottaaðstöðu og geymslu undir stiga við forstofu í húsi á lóð nr. 11 við Fýlshóla. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2022.