Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. maí 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að hækka ris, byggja viðbyggingu í skot á bakhlið og byggja svalir á suðurhlið, byggja nýjan kvist á bakhlið og breyta í fjölbýlishús með fjórum íbúðum einbýlishúsi á lóð nr. 6A við Frakkastíg.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 8. febrúar 2013 og bréf arkitekts dags. 25. apríl 2013.