Á fundi skipulagsfulltrúa 24. janúar 2014 var lögð fram umsókn Zeppelin arkitekta f.h. Landslagna ehf. dags. 22. janúar 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skuggahverfis vegna lóðarinnar nr. 6A við Frakkastíg. Breytingin gengur m.a. út á að stækka stigahús sunnan á húsinu og byggja tveggja hæða viðbyggingu í sundinu norðan við gamla húsið, skv. uppdráttum dags. 21. janúar 2014. Umsókninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Frakkarstíg 5, 6b og Lindargötu 46, 46a, 48 og 50.