Lögð fram umsókn Zeppelin arkitekta f.h. Landslagna ehf., dags. 22. janúar 2014, um breytingu á deiliskipulagi Skuggahverfis vegna lóðar nr. 6A við Frakkastíg skv. uppdráttum, dags. 21. janúar 2014. Breytingin gengur m.a. út á að stækka stigahús sunnan á húsinu og byggja tveggja hæða viðbyggingu í sundinu norðan við gamla húsið.