Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram erindi Valdimars Briem dags, 22. nóvember 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.0 vegna lóðarinnar nr. 3 við Óðinsgötu. Í breytingunni felst færsla á byggingarreit bílskúrs, samkvæmt uppdr. Andrésar Narfa Andréssonar dags. 20. nóvember 2012. Tillagan var grenndarkynnt frá 3. desember 2012 til og með 7. janúar 2013. Engar athugasemdir bárust.