Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 5. október 2012 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. október 2012 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, koma fyrir þakgluggum á vesturhlið og inngangi í kjallara, setja útihurð á sólstofu og hlið á innkeyrslu, byggja sólpall m/setlaug í garði, færa glugga og skrautlista til upprunalegs horfs og breyta í einbýlishús fjölbýlishúsi á lóð nr. 30 við Tjarnargötu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags.10.október 2012
Gjald kr. 8.500