Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. október 2012 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, koma fyrir þakgluggum á vesturhlið og inngangi í kjallara, setja útihurð á sólstofu og hlið á innkeyrslu, byggja sólpall m/setlaug í garði, færa glugga og skrautlista til upprunalegs horfs og breyta í einbýlishús fjölbýlishúsi á lóð nr. 30 við Tjarnargötu. Gjald kr. 8.500