Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. janúar 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. janúar 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja nýjan steinsteyptan bílskúr, einangraðan að innan, á lóð nr. 106 við Hringbraut. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. janúar 2019.
Stærð: 30 ferm., 91,1 rúmm. Erindinu fylgir samþykki nágranna dagsett 16. september 2018. Gjald kr. 11.000