Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. nóvember 2018 þar sem sótt er um leyfi til að hækka og byggja mænisþak á bílskúr og til að byggja verönd með skjólveggjum og heitum potti með öryggisloki sem verður sérnotaflötur íbúðar 0101 á lóð nr. 10 við Njörvasund. Stækkun 22,5 rúmm., flatarmál óbreytt. Samþykki meðeiganda dags. 12.05.2015 liggur fyrir. Gjald kr. 11.000