Fyrirspurn
Lögð fram tillaga að breyttu deiliskipulagi Lýsisreits vegna lóðarinnar nr. 44 við Grandaveg. Í breytingunni felst niðurfelling á hjúkrunarheimili og fjölgun íbúða á svæðinu samkvæmt deiliskipulagsupprætti Gláma/Kím ehf. dags. í mars 2013. Einnig eru lagðir fram skýringaruppdrættir ásamt skuggavarpi og skilmálum dags. í mars 2013 ásamt útlitsmyndum
Jafnframt er lagður fram samningur Reykjavíkurborgar við lóðarhafa dags. í mars 2013.