Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 16. nóvember 2012 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. nóvember 2012 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja 99 íbúða fjölbýlishús, átta hæðir og sú níunda inndregin á lóð nr. 44 við Grandaveg. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.