Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 31. maí 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja utanáliggjandi stigahús á suðurhlið einbýlishúss á lóð nr. 13 við Garðsenda.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. maí 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2016. Tillagan var grenndarkynnt frá 9. september til og með 7. október 2016 en þar sem samþykki hagsmunaaðila liggur fyrir er erindið nú lagt fram að nýju.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm. Gjald kr. 10.100