Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
Hraunbrekku ehf.
dags. 14. mars 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Breiðholts 3, Hólahverfi, norðurdeild vegna lóðarinnar nr. 6 við Fýlshóla. Í breytingunni felst að byggingarmagn og heimil hámarkshæð er skilgreind nánar, samkvæmt uppdr. Guðmundar Gunnlaugssonar ark. dags. 11. mars 2014. Tillagan var grenndarkynnt frá 4. mars til og með 6. maí 2014. Engar athugasemdir bárust.