Að lokinni auglýsingu er lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, frumathugana mannvirkja deildar að breytingu á deiliskipulagi Þróttarsvæðis vegna lóðarinnar Holtavegur 11. Í breytingunni felst að koma fyrir færanlegri kennslustofu skv. uppdr. dags. 19. mars 2013. Tillagan var auglýst frá 26. apríl til og með 12. júní 2013. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Sólveig Lind Ásgeirsdóttir dags. 31. maí 2013 og Ragnheiður Ásta Þorvarðardóttir dags. 31. maí 2013.