Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. nóvember 2021 þar sótt er um leyfi til að byggja kirkju auk kjallara, fyrir 245 manns og 5 starfsmenn á lóð nr. 2 við Bræðraborgarstíg. Stækkun er: 560,2 ferm., 3.847,7 rúmm. Erindi fylgir mæliblað ódagsett, greinargerð brunahönnuðar dags. 22. október 2021 og greinargerð hljóðvistar dags. 14. október 2021. Gjald kr.12.100