Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. apríl 2018 var lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Hafnarstrætisreits, reits 1.118.5. Í breytingunni felst að svæði fyrir sorpskýli er stækkað og byggingarreitur fyrir það skilgreindur, samkvæmt uppdr. Landmótunar dags. 16. apríl 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.