Lögð fram fyrirspurn PK arkitekta f.h. eigenda að Laugavegur 4-6 og Skólavörðustíg 1A, mótt. 24. október 2016, um að fjórar samþykktar íbúðir, staðsettar á 2. til 5. hæð við Skólavörðustíg 1A, verði nýttar undir gistiþjónustu. Hugmyndin er að íbúðir verði leigðar út í skammtímaleigu til erlendra ferðamanna en á jarðhæð verði starfrækt verslun sbr. samþykktum aðaluppdráttum.