Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. október 2016 var lögð fram fyrirspurn PK arkitekta f.h. eigenda að Laugavegur 4-6 og Skólavörðustíg 1A, mótt. 24. október 2016, um að fjórar samþykktar íbúðir, staðsettar á 2. til 5. hæð við Skólavörðustíg 1A, verði nýttar undir gistiþjónustu. Hugmyndin er að íbúðir verði leigðar út í skammtímaleigu til erlendra ferðamanna en á jarðhæð verði starfrækt verslun sbr. samþykktum aðaluppdráttum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags.4. nóvember 2016.