Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2014 var lögð fram fyrirspurn Ársæls Valfells dags. 31. janúar 2014 varðandi stækkun hússins á lóðinni nr. 30 við Gunnarsbraut. Einnig er lögð fram greinargerð Ársæls Valfells dags. 30. janúar 2014. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags.19. febrúar 2014.