Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 15. mars 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. mars 2013 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að taka í notkun óútgrafið rými, ca. 77 ferm stækkun, koma fyrir gluggum og kjallaratröppum á hliðar hússins á lóð nr. 27 við Granaskjól. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21.mars 2013.