Lögð fram fyrirspurn Stefaníu Sigfúsdóttur dags. 20. mars 2013 varðandi breytingu á byggingarreit lóðarinnar nr. 22 við Láland. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. mars 2013.
Svar
Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.