Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 5. apríl 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. mars 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr fyrir íbúð annarrar hæðar hússins á lóðinni nr. 38 við Freyjugötu. Einnig er spurt um stærð og staðsetningu bílskúrsins ef leyfi fengist til þess að byggja hann. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. apríl 2013.