Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. mars 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr fyrir íbúð annarrar hæðar hússins á lóðinni nr. 38 við Freyjugötu. Einnig er spurt um stærð og staðsetningu bílskúrsins ef leyfi fengist til þess að byggja hann.