Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 12. apríl 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. apríl 2013 þar sem spurt er hvort endurbyggja megi og endurnýja frá grunni úr steypu og timbri og færa frá lóðarmörkum, geymslu (áður bílskúr) á lóðinni nr. 57A við Vesturgötu. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. apríl 2013.