Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
111 ehf.
dags. 3. júlí 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðarinnar nr. 18 við Friggjarbrunn. Í breytingunni felst að fjölga íbúðum úr fimm í sjö, samkvæmt uppdr. Mansard - Teiknistofu ehf. dags. 3. júlí 2014. Einnig er lögð fram greinargerð Mansard - Teiknistofu dags. 3. maí 2014. Tillagan var auglýst frá 17. september til og með 29. október 2014. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Arinbjörn Marinósson dags. 23. september 2014.