Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 13. febrúar 2015 var lögð fram fyrirspurn Mansard teiknistofu ehf. dags. 12. febrúar 2015 ásamt greinargerð dags. 11. febrúar 2015 varðandi almenna framkvæmd skilmála fyrir deiliskipulagsáfanga I, Hallar, Hamrahlíðarlönd og suður Úlfarsfells, Úlfarsárdalur, deiliskipulag hverfi 4. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. febrúar 2015.