Á fundi skipulagsfulltrúa 22. nóvember 2013 var lögð fram umsókn Orkuveitu Reykjavíkur dags. 15. nóvember 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi Grafarlæk-Stekkjarmóa-Djúpadals vegna lóðarinnar nr. 13 við Krókháls. Í breytingunni felst að kvöð um lagnir sem nú er norðan/vestan við lóðina verði færð austur/suður fyrir lóðina, samkvæmt uppdr. Landmótunar dags. 13. nóvember 2013. Umsókninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.