Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. júli 2017 var lögð fram umsókn
THG Arkitekta ehf.
, mótt. 24. júlí 2017, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Grafarlækjar-Stekkjarmóa-Djúpadals vegna lóðarinnar nr. 13 við Krókháls. í breytingunni felst að nýta landhallann sem er á lóðinni og láta bygginguna fylgja honum betur. Húsið verður þá á tveimur hæðum í stað einnar. Frá Krókhálsi í suðurátt verður húsið á einni hæð en að norðan og vestanverður verður húsið á tveimur hæðum og suðurhluti hæðarinnar grefst inn í hlíðina. Akstursrampi fyrir neðri hæðina verður við austanvert húsið, samkvæmt tillögu
THG Arkitekta ehf.
, dags. 20. júlí 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1193/2016.