Lögð fram umsókn Grímu Arkitekta ehf. dags. 16. ágúst 2019 um sameiningu lóða nr. 24 og 26 við Grensásveg og gera nýjan byggingarreit við suðurgafl hússins á lóð nr. 26 við Grensásveg ásamt því að heimilt er að byggja einnar hæðar byggingu með þaksvölum og koma fyrir veggsvölum á 3. hæð á reitnum, samkvæmt uppdrætti Grímu Arkitekta ehf. dags. 16. ágúst 2019. Einnig er lögð fram eldri umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. mars 2019.