Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. október 2016 var lögð fram umsókn
Noland arkitekta ehf.
, mótt. 5. október 2016, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulag reits 1.173.0 vegna lóðarinnar nr . 9 við Frakkastíg. Í breytingunni felst að breyta notkun hússins úr einbýlishúsi í veitingastað í flokki III. Einnig er lögð fram greinargerð
Noland arkitekta ehf.
, dags. 5. október 2016. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. október 2016.