Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. ágúst 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. ágúst 2020 þar sem sótt er um leyfi til að stækka svalir á fyrstu og annarri hæð, setja á þær handrið, koma fyrir tveimur þakgluggum á suðurhlið, tveimur á norðurhlið og einum á austurhlið, koma fyrir dyrum úr stofu kjallaraíbúðar út í garð á suðurhlið, sambærilegar við svaladyr á hæðum fyrir ofan, yfirborð garðsins er lækkað fyrir framan dyrnar auk þess sem gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi íbúða, í hús á lóð nr. 43 við Barmahlíð. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. ágúst 2020.
Gjald kr. 11.200