Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 6. desember 2013 var lögð fram fyrirspurn Dap arkitekta dags. 5. desember 2013 varðandi hækkun á þaki hússins á lóðinni nr. 3 við Hólavallagötu, setja tvo kvisti götumegin og tvo garðmegin ásamt inndregnum svölum og nýjum inngangi og fjölgun íbúða í kjallara, samkvæmt uppdr. Dap arkitekta dags. 4. desember 2013 greinargerð dags. 5. desember 2013. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. janúar 2014.