Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem sótt er um leyfi til að hækka ris og byggja svalir á bakhlið, lækka jarðveg við suðurhlið húss, innrétta nýja íbúð í risi og hjóla- og vagnageymslu í kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 3 við Hólavallagötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. mars 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. mars 2014. Uppdrættir KJ hönnunar, dags. 15. apríl 2014. Uppdrættir nr. 10-01, 10-02, 10-03. Erindi fylgir fsp. BN047045 dags. 14. janúar 2014. Stækkun: 76,7 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hólvallagötu 5, Túngötu 7 og 9, Garðastræti 34 og 36.