Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 10. maí 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 7. maí 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að lyfta þaki, breyta innra skipulagi 1. hæðar, lækka land við suðurhlið og breyta gluggum og hurðum á einbýlishúsi á lóð nr. 9 við Katrínartún. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra.
Erindi fylgir greinargerð hönnuðar dags. 30. apríl 2013.