Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. ágúst 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og gera fimm sjálfstæðar íbúðir í húsinu, fjarlægja reykháf sem snýr að götuhlið, stækka svalir, síkka glugga í kjallara og setja nýja kvisti og þakglugga á hús á lóð nr. 29 við Víðimel. Erindi fylgir yfirlit breytinga á útliti hússins og bréf Minjastofnunar dags. 2. júlí 2020. Gjald kr. 11.200