Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. september 2022 var lögð fram fyrirspurn Páls V. Bjarnasonar, dags. 17. ágúst 2022, um stækkun hússins á lóð nr. 62 við Lindargötu sem felst í að byggja viðbyggingu til vesturs, hækkun á kjallara hússins og framlengja hann til suðurs, samkvæmt uppdr. Park dags. 17. ágúst 2022. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 17. ágúst 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. október 2022.