Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. september 2015 þar sem sótt er um leyfi til að stækka kvist og gera svalir á norðurhlið rishæðar fjölbýlishúss á lóð nr. 41 við Sólvallagötu. Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa v/fsp. BN049299 dags. 13. maí 2015 og erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 13. ágúst 2015. Stækkun: 13,8 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Sólvallagötu 32,32A,34,39 og 43.