Lögð fram fyrirspurn
Alternance slf.
dags. 2. febrúar 2021 ásamt greinargerð dags. 29. janúar 2021 um breytingu á deiliskipulagi Ægisíðu vegna lóðarinnar nr. 62 við Ægisíðu sem felst í að byggingarreitnum verði snúið eins og húsið og hann færður til svo að húsið verði innan hans og lögun hans breytt frá stílbragði og nýtingu núverandi húss, gera sólskála við bílskúrsvegg sem snýr út að garði og smækka byggingarreit undir aðalbyggingu til samræmis við stærð reitsins undir garðskálann.