Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. júní 21013 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr timbri við norðurhlið, geymsluskúra í norðvesturhorni lóðar, breyta innra skipulagi og breyta í einbýlishús tvíbýlishúsi á lóð nr. 12 við Faxaskjól. Erindi var grenndarkynnt frá 14. júní til og með 12. júlí 2013. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Jón Ólafur Ísberg dags. 25. júní 2013, Oddný Yngvadóttir dags. 2. júlí 2013 og Inga Rós Ingólfsdóttir og Hörður Áskelsson dags. 10. júlí 2013. Stækkun húss: 32 ferm., xx rúmm. Geymsluskúrar: 6,7 ferm., xx rúmm. Gjald kr. 9.000