Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 21. janúar 2011 var lögð fram fyrirspurn Listasafns Einars Jónssonar dags. 18. nóvember 2010 varðandi leyfi til að byggja viðbyggingu við húsið nr. 3 við Hallgrímstorg Hnitbjörg samkvæmt tillögu Studio Granda dags. í september 2010. Einnig er lagt fram bréf Borgarminjavarðar dags. 4. nóvember 2010, bréf Húsafriðunarnefndar dags. 12. nóvember 2010 og tölvubréf Júlíönu Gottskálksdóttur dags. 20. janúar 2011. Erindinu var vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu og er nú lagt fram að nýju.