Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds, að breytingu á deiliskipulagi Suðurhlíða vegna lóðar nr. 9 við Suðurhlíð, Klettaskóla. Í breytingunni sem lögð er fram felst að gerður er nýr byggingarreitur fyrir fjórar tímabundnar kennslustofur og byggingarmagn eykst sem því nemur, samkvæmt uppdr. OG arkitektastofunnar dags. 28. júlí 2022.