Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. mars 2022 var lögð fram fyrirspurn Cairo ehf. dags. 11. febrúar 2022 ásamt bréfi Grímu arkitekta ehf. dags. 7. febrúar 2022 um stækkun og hækkun á fyrirhugaðri viðbyggingu við suðurgafl hússins á lóð nr. 24 við Grensásveg. Einnig eru lagðir fram uppdrættir Grímu arkitekta ehf. dags. 15. og 31. október 2019 og 7. og 8. febrúar 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. apríl 2022.