Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. maí 2014 þar sem sótt er um samþykki á reyndarteikningu, þar sem gerð er grein fyrir áður gerðri aukaíbúð á jarðhæð, og nýrri skráningartöflu fyrir íbúðarhús á lóð nr. 8 við Depluhóla. Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 10. febrúar 2014. Gjald hefur ekki verið sett á erindið