Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 10. júní 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. júní 2022 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi, breyta notkun bílskúrs mhl.02, byggja einlyfta viðbyggingu úr timbri við vesturhlið einbýlishúss, mhl.01, og að gafli aðliggjandi húss nr. 16 við Bragagötu, á lóð nr. 10 við Urðarstíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. júlí 2022.