Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. nóvember 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu, fjórar hæðir og kjallara, steinsteypt, einangruð og klædd glerklæðningu, við hátæknisetur Alvotech á lóð nr. 15-19 við Sæmundargötu. Erindi fylgir greinargerð um hljóðvist dags. 17. nóvember 2020, samþykki fasteignafélagsins Sæmundar dags. 17. nóvember 2020 og yfirlit yfir eldra hús. Stækkun, A-rými: 12.588 ferm., 57.466,5 rúmm. B-rými: 29,3 ferm., 111,4 rúmm. Samtals: 13.286,2 ferm., 57.892,4 rúmm. Gjald kr. 11.200