breyting á deiliskipulagi
Sæmundargata 15-19
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 458
30. ágúst, 2013
Engar athugasemdir
‹ 355753
355953
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 16. ágúst 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 13. ágúst 2013 þar sem sótt er um leyfi til að byggja úr steinsteypu á þremur hæðum með inndreginni fjórðu hæð og kjallara fyrir lager og bílageymslu líftæknihús Alvogen fyrir lyfjaframleiðslu og skrifstofur á svæði Vísindagarða Háskóla Íslands á lóð nr. 15-19 við Sæmundargötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. ágúst 2013. Meðfylgjandi er bréf verkefnisstjóra skipulagsfulltrúa dags. 10.6. 2013, lýsing á starfsemi hússins (System description) dags. 30.4. 2013, bréf Skipulagsstofnunar dags. 3.4. 2012. Stærðir: Kjallari, bílgeymsla, 2.228,5 ferm., kjallari, tæknirými og geymslur 1.495,7 ferm., 1. hæð, 3.655,1 ferm., 2. hæð, 1.627 ferm., 3. hæð, 3.121,8 ferm., 4. hæð, 1.263 ferm., Samtals, 13.391,1 ferm. og 62.615,2 rúmm. Gjald kr. 9.000
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.