Lögð fram drög að tillögu umhverfis- og skipulagssviðs., dags. 4. apríl 2017, vegna gerðs nýs deiliskipulags Vogabyggðar svæði 1 fyrir Gelgjutanga. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar, dags. 4. Apríl 2017, og umhverfisskýrsla, dags. júní 2016. Jafnframt er lögð fram byggðakönnun, fornleifaskrá og húsakönnun, dags. 2016.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.5 í Gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.