Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. október 2017 var lagt fram bréf skipulagsstofnunar dags. 12. október 2017 þar sem ekki er gerð athugasemd við að sveitarstjórn birti auglýsingu um samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda þegar lagfærð gögn hafa borist stofnuninni. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Lagfærð gögn lögð fram, uppdráttur og greinargerðir, dags. 5. júlí 2017, breytt 27. október 2017.